Kæru íbúar Laugardalshverfa, þá er komið að fundi með frambjóðendum til sveitarstjórnarkosninga!
Íbúasamtök Laugardals blása til opins borgarafundar með frambjóðendum í Laugarnesskóla fimmtudagskvöldið 6. maí, kl. 20
Frambjóðendur halda stutta framsögu og sitja síðan fyrir svörum eftir kaffi.
Flestir flokkar hafa ákveðið að senda fulltrúa en tveir hafa þegar ákveðið sig.
Oddviti VG, Sóley Tómasdóttir kemur á fundinn.
Fyrir Framsóknarflokkinn kemur Valgerður Sveinsdóttir, nýr annar maður á lista. Aðrir flokkar verða einnig með fulltrúa.
NÚ ER TÆKIFÆRIÐ TIL AÐ HEYRA HVAÐ FRAMBJÓÐENDUR HAFA SEGJA UM MÁLEFNI
HVERFIS OG BORGAR
Komið í Laugarnesskóla á fimmtudagskvöld!
Með kærri kveðju
frá stjórn Íbúasamtaka Laugardals.