Íbúar í Vogahverfi fjölmenntu á opinn íbúafund í Vogaskóla í lok febrúar. Fundurinn var haldinn í tilefni af kynningu hagsmunaðila vegna deiliskipulags fyrir Vogahverfi sunnan Skeiðarvogs.
Góður rómur var gerður að erindum fyrirlesara sem ræddu um Vogahverfið í nútíð og framtíð. Þorgrímur Gestsson, blaðamaður og rithöfundur, fjallaði um sögu og þróun byggðar allt frá Laugarnesi inn í Voga. Arkitektinn Pétur H. Ármannsson hélt erindi um byggingarasögu hverfisins og Helga Maureen Gylfadóttir, sagnfræðingur á Árbæjarsafni, sagði frá gerð húsakönnunar sem Árbæjarsafn vinnur að fyrir Vogahverfi. Auk þess kynnti Hildigunnur Haraldsdóttir, arkitekt hjá Skipulags- og byggingarsviði, skipulagstillögu borgarinnar.
Að erindum loknum gafst gestum kostur á að leggja fram fyrirspurnir. Í kjölfarið sköpuðust líflegar umræður og greinilegt er að íbúar Vogahverfis hafa mikinn áhuga á fortíð hverfisins og er afar annt um framtíð þess.
Heimasíða Íbúasamtaka Laugardals er www.laugardalur.com