Gettu Gutti á Ölveri

Fimmtudagskvöldið 25.mars standa Íbúasamtök Laugardals að fyrstu hverfisspurningakeppninni þegar haldin verður kráarkeppni, eða pöbbkviss, á Ölveri í Glæsibæ. Keppnin hefur fengið nafnið Gettu Gutti til heiðurs hugumprúða nautinu Guttormi sem prýðir einkennismerki íbúasamtakanna.

Keppnin fer þannig fram að tveir keppa saman í liði en liðin geta verið fjölmörg (allir koma með eigin liðsfélaga - því hvorki mega vera fleiri né færri en tveir keppendur í hverju liði!). Keppendur skrá svör við spurningum spyrils niður á blað. Spurningarnar geta verið um allt á milli himins og jarðar. Eftir að allar spurningarnar hafa verið bornar upp skiptast liðin á blöðum þannig að ekkert lið fer yfir eigið blað þegar spyrill gefur upp réttu svörin. Það lið sem flest stigin fær hreppir verðlaunin – sem verða ekki af verri endanum.

Hverfisbúar, sem náð hafa 20 ára aldri, eru hvattir til að kíkja á Ölver fimmtudagskvöldið 25.mars, kl. 20:00 og keppa við nágranna sína og aðra íbúa Laugardalsins í skemmtilegri spurningakeppni.

Nánari upplýsingar á www.laugardalur.blog.is