Í desember veitti borgarstjórinn í Reykjavík Íbúasamtökum Laugardals styrk úr Forvarna- og framfarasjóði Reykjavíkurborgar til þess að vinna að gerð útilistaverks í Laugardalshverfunum við hátíðlega athöfn sem fram fór í Höfða á Þorláksmessu.
Í verkefninu munu íbúasamtökin vinna að hönnun og byggingu samfélagslistarverksins “Guttormi” með unglingum í Laugardalshverfunum, en svo hét nautið fræga sem var lengi vel í Húsdýragarðinum. Guttormur hefur öðlast sess í hugum hverfisbúa sem tákn hins vingjarnlega granna og hefur m.a. verið notaður í merki íbúasamtakanna og heiti á bloggsíðu þeirra.
Markmið verkefnisins er að efla samskipti á jákvæðum nótum meðal íbúa Laugardalshverfanna og getur Guttormur orðið að eins konar sameiningartákni fyrir þau. Sérstök áhersla er lögð á listsköpun og samvinnu unglinga í Voga-, Langholts- og Laugarlækjarskóla. Verkefnið verða vettvangur fyrir unglinga sem áhuga hafa á þátttöku í samfélagslist sem miðar að því að skapa skemmtilegan hverfisbrag. Gert er ráð fyrir að Guttormur verði bæði vingjarnlegt og skrautlegt naut sem börnin í hverfinu geta fært úr stað. Hann mun skjóta upp kollinum á torgum, í görðum, á skólalóðum, við verslanir eða hvert sem börnum eða öðrum íbúum dettur í hug að leiða hann. „Hvar er Guttormur?”gæti þannig orðið skemmtilegur leikur meðal íbúa hverfisins og svo mætti áfram telja.
Krakkarnir munu vinna verkið undir leiðsögn Ólafar Nordal myndalistarmanns og Kristínar Þorleifsdóttur landslagsarkitekts. Gert er ráð fyrir að verkefnið fari af stað í mars og verði afhjúpað í byrjun sumars. Verkið verður einnig þátttakandi í Hönnunardögum í lok mars.
Sérstakur ráðgjafarhópur borgarstjóra lýsti verkefninu á eftirfarandi hátt:
„Verkefnið er einstaklega frumlegt og skapandi. Áherslan á listsköpun og samvinnu unglinga úr þremur skólum hverfisins auk þátttöku foreldra, starfsmanna Fjölskyldu- og húsdýragarðsins og fleiri lykilaðila í hverfinu er afar jákvæð. Verkefni sem þetta getur aukið stolt og samtakamátt íbúa með tilheyrandi virðisauka eða félagsauði. Í umsögn hverfisráðs Laugardals er verkefnið sagt einstaklega heillandi og skemmtilegt”
Kristín Þorleifsdóttir
Formaður ÍL