Niðurstaða aðalfundar 2012

Aðalfundur íbúasamtaka Laugardals fyrir tímabilið 2010-2011 var haldinn þ. 16.2.2012 í fræðslusetri þjónustumiðstöðvar Laugardals, Háaleitis og Bústaða.  Fundurinn var skv. hefðbundum aðalfundarstörfum og var lögð fram breyting á 5.gr. laga um dagsetningu aðalfundar.  Ákveðið var að miða uppgjör reikninga við tímailið jan-des ár hvert og halda síðan aðalfund á tímabilinu janúar til maí.  Engin breyting varð að öðru leyti, stjórnin er óbreytt og fjárhagslega hliðin er aðeins betri en birtist á aðalfundi þar á undan.

Aðalfundur íbúasamtaka Laugardals 2012

Aðalfundur Íbúasamtaka Laugardals verður haldinn þann 16.febr.2012 kl. 17:30 í Fræðslusetri þjónustumiðstöðvar Laugardals, Háaleitis og Bústaða, Síðumúla 39, Reykjavík.

Lagabreyting: 5.gr. Aðalfund skal halda á tímabilinu janúar-maí ár hvert. Skal hann boðaður með a.m.k. viku fyrirvara í a.m.k. einu blaði sem borið er í öll hús á svæðinu, ásamt því að vera auglýstur á heimasíðu samtakanna og telst fundarboðunin þá lögleg.

Útimarkaður Íbúasamtaka Laugardals
Útimarkaður Íbúasamtaka Laugardals
Útimarkaður Íbúasamtaka Laugardals

Kæri granni!

Þá er komið að hinum árlega útimarkaði Íbúasamtaka Laugardals. Í ár verður markaðurinn haldinn laugardaginn 27. ágúst kl. 11-16 í trjágöngunum milli Grasagarðsins og Fjölskyldu- og Húsdýragarðsins.

Á markaðnum má kaupa allt milli himins og jarðar; föt, fínerí, geisladiska, grænmeti, leikföng, listmuni, húsgögn, handverk, heimagerðar sultur, bækur og ber.

Ávallt er mikið fjör á markaðnum enda eru skemmtilegar uppákomur stór hluti af aðdráttarafli hans. Öllum er velkomið að stíga á stokk. Hljóðkerfi verður á staðnum.

Svör við spurningum í vikublaðinu Reykjavík

Íbúasamtök Laugardals voru beðin um að svara spurningu varðandi þróun borgarmála í vikublaðið Reykjavík og hverjar óskir samtakanna séu á nýju ári.

Svörin birtust í 2. tbl. 15.janúar 2011.

Hvernig sérðu fyrir þér þróunina í borgarmálunum árið 2011?

Borgin ætlar að grípa til þess ráðs að hækka gjöldin. Það vonandi verður til þess að þjónustan rýrni ekki, heldur styrkist frekar.
Íbúasamtökin hafa sérstakar áhyggjur af því að þjónusta leik- og grunnskóla fari rýrnandi og að það muni reyna á öryggisþætti í tengslum við hverfið.

Ræða formanns á aðalfundi 2010

Ágætu fundarmenn.
Reykjavík er skipt í 10 megin svæði/hverfi og er Laugardalur eitt þeirra.
Undirhverfi Laugardals ganga oftast undir nöfnum eins og:
Tún, Teigar, Lækir, Laugarnes, Sund, Heimar, Langholt, Vogar, Skeifan og Fen.

Tilgangur þessara samtaka er að vera samstarfsvettvangur íbúa og félagasamtaka á
félagssvæðinu, að vinna að framfara- og hagsmunamálum í hverfunum sem umlykja Laugardal,
að stuðla að samhug innan svæðisins og að byggja upp samstarf við opinberar stofnanir sem
hafa með málefni hverfisins að gera.

Aðalfundur 2009-2010

Aðalfundur v/ tímabils 2009-2010.
Aðalfundur Íbúasamtaka Laugardals var haldinn 25.11.2010. í þjónustumiðstöð
samtakanna, Síðumúla 39.
Lesin var skýrsla stjórnar og reikningar (1.11 2009 -31.10.2010) samtakanna lagðir fram
til samþykktar.
Sjóður samtakanna er tæmdur og er það vel.
Kom fram að íbúasamtökin hafa ekki legið á liði sínu, héldu mánaðarlega fundi frá
hausti til sumars, stóðu fyrir nokkrum kynningarfundum á málefnum tengdum hverfi, auk
útimarkaðar, spurningakeppni, hreinsunarátaks ofl.

Hin frábæra bók 'Mannlíf við Sund' eftir Þorgrím Gestsson endurútgefin

Kæru grannar!

Stjórn íbúasamtaka Laugardals mælir eindregið með endurútgefinni bók Þorgríms Gestssonar um sögu og mannlíf í Laugarnesi. Þetta er bók sem ætti að vera til á hverju heimili í þessum borgarhluta! Tryggið ykkur eintak strax hér að neðan!

Stjórn ÍL

 

Ófáanleg bók endurútgefin:

Hvað er hverfi? Málþing 10. nóvember 2010

Málþing Íbúasamtaka Laugardals og Hverfisráðs Laugardals sem nefnist "Hvað er hverfi? Hugmyndafræði á tímum breytinga" verður haldið í safnaðarheimili Laugarneskirkju 10. nóvember 2010, klukkan 20-22.

Erindi á málþinginu eru:

  • Hverfi í tímans rás:   Kristín Þorleifsdóttir, landslagsarkitekt
  • Svefnhverfi og draumahverfi:   Hannes Lárusson, myndlistarmaður
  • NærumHVERFI:   Ólöf Örvarsdóttir, arkitekt og skipulagsstjóri í Reykjavík

Pallborð:

Opinn borgarafundur með frambjóðendum flokkanna

Kæru íbúar Laugardalshverfa, þá er komið að fundi með frambjóðendum til sveitarstjórnarkosninga!

Íbúasamtök Laugardals blása til opins borgarafundar með frambjóðendum í Laugarnesskóla fimmtudagskvöldið 6. maí, kl. 20

Frambjóðendur halda stutta framsögu og sitja síðan fyrir svörum eftir kaffi.

 

Syndicate content